Eggert rifjar upp skemmtilegar minningar úr Hrauneyjum í nýjasta blogginu sínu. Hver kannast ekki við að hafa verið hankaður á því að benda hróðugur á „bensínmælinn“ og hafa fengið svarið „þetta er díselbíll!“ (retórísk spurning)? en ek heiti Sverrir 16:02
Bróðir blogganda fann þessa grein um Ídí Amín og matarsmekk hans. Myndin með greininni framkallar hugrenningatengsl við ákveðinn atburð á haustdögum 1993...
Hér er best að ljúka blogginu, enda ætlar Ormurinn að fá vinnu í framtíðinni. en ek heiti Sverrir 15:05
Ef þið ímyndið ykkur hvaða viðurnefni þessi bloggari gæti hafa borið um ævina, þá munu uppljúkast dyr (vona að þetta sé rétt hjá mér). Er ég þó á engan hátt að vega að Kristbirni (blogg hans er skemmtilegt aflestrar) heldur eiga að framkallast hugrenningatengslin við stað á Suðurlandi. (Vá, þröngur markhópur!) en ek heiti Sverrir 14:47
„Búkurinn liggur í rúminu“-minnisregluna heyrði bloggandi fyrst hjá þulinum Torfa Guðbrandssyni, afa Guðmundar Björnssonar, haustið 1995 þegar businn hóf liðstjórastarf hjá spurningaliðinu. Annars skemmtileg skilgreining á „aumingjabloggara hinum minni“ og reglulegum „aumingjabloggara“ hjá Kisa. Minnir undirritaðan mest á skilgreininguna á kúgildi. en ek heiti Sverrir 14:21
Ekkert fær stöðvað bróðurkærleikann því í augnablikinu spjalla allir þrír á MSN-inu; einn í Afríku, annar í Elliðaárdalnum og sá þriðji í Vesturbænum. Frábært! en ek heiti Sverrir 13:32
Í nótt eru væntanlegir til landsins ferðalangar frá Mílanó. Þeir munu væntanlega þurfa þerru og þjóðlaðar við. Aðdáendaklúbburinn á Lynghaga er í viðbragðsstöðu.
Eggert gestrisni veltir því fyrir sér hvernig bræðurnir á Lynghaganum standa sig í pitsugerðinni. Af undirtektum gesta í gærkvöldi er það að segja, að þegar önnur bakan var langt komin og ekkert hrós komið frá gestunum fyrir matreiðsluna spurði Ormurinn matargesti hvort pitsan væri ekki góð. Jú, þeir héldu nú það og vonar aðstandandi síðunnar að þeir hafi meint það en ekki bara verið kurteisir (enda kurteisasta fólk í heimi).
Framhleypnina bætti Ormurinn upp með einni þeirri lélugustu lygi sem um getur. Sagði hann af því þegar undirritaður og Snorri Beck prentuðu út í Menntaskólanum töluna sem þá var þekkt sem stærsta prímtalan (909.526 stafir (skjal um 900 kB)). (Samkvæmt vefsíðunni um stærstu þekktu prímtölurnar er talan sem nú á metið 4.053.946 stafir að lengd.)
Þessi frásögn endaði hins vegar heldur snautlega þegar undirritaður laug því í fljótfærni sinni, að síðasti stafurinn hefði verið 0.
Gaman að heyra af því í gær að „lögmálið um óupptekinn kexpakka eða engan kexpakka“ gildi í fleiri stöðum en á Lynghaga. Síðan vonar Ormurinn að allir matargestir hafi komist klakklaust til síns heima.
Dálítið sérstakt var að lesa í gær í Morgunblaðinu að Hafþór Guðjónsson, efnafræðirithöfundurinn knái, væri kominn með doktorspróf í kennslufræðum. Það er frekar mál manna að ekki hafi mikið farið fyrir „kennslufræðiáherslum“ í bókunum hans, Almennri efnafræði I-III.
En fróðlegra var þó að heyra frá Kennaranum í gær, að hann hefði kennt stjörnufræði á sínum tíma (þegar hann kenndi einnig eðlisfræði). Spurði hann ungu kennarablókina hve margir tímar væru á viku í stjörnufræðinni. „Þrír tímar á viku.“ „Já, það voru bara tveir tímar í stjörnufræði þegar ég kenndi hana og það var eiginlega of lítið til þess að kynnast fólkinu almennilega. Auk þess var þetta bölvað fúsk hjá mér“, sagði Kennarinn af sinni alkunnu hógværð. en ek heiti Sverrir 09:14
Nýr bloggari, Eggert Eyjólfsson, hefur geyst (?) fram á bloggvöllinn og verður gaman að fylgjast með bloggi hans frá Ungverjalandi, þar sem hann mun stunda læknanám í vetur. Eggerti kynntist bloggari fyrst sumarið 1997 í Hrauneyjum en annars er rétt að vísa til eins af nostalgíubloggunum til að gefa mynd af kynnum blogganda og þessa góða drengs. en ek heiti Sverrir 17:58
Siv Friðleifsdóttir og pólitík.is eru rækilega tekin í gegn af nákvæmnismanninum Sverri í færslum dagana 23. og 27. ágúst. Það sem meira er, þá lagar fólkið vitleysurnar eftir að ábendingin er komin fram (plús fyrir Sverri), en þó ekki fyrr en þetta er orðið skjalfest og opinbert hjá þeim óljúgfróða.
Til að allrar sanngirni sé þó gætt þá biðst Ormurinn afsökunar á þeirri fljótfærni sem kom fram í bloggfærslu um stærsta rúm landsins við IKEA. Það er ekki lengur við Holtagarða (og er komið hvert?). Fyrrum samstarfsmaður bloggara, Guðmundur Ragnar Björnsson (já, þeir eru 3 á landinu!), sem unnið hefur hjá IKEA, leiðrétti þetta í athugasemdakerfi undirritaðs.
Eins virðist blogganda sem að það sé ekki ráðlegt að taka vaðlinum um kennitölurnar á þessari síðu sem heilögum sannleik, ef mark er takandi á þeim athugasemdum sem fram hafa komið. en ek heiti Sverrir 12:50
Ormurinn og kunningi fóru að velta fyrir sér hvort ekki væri gott að kunna Matrixbragðið (við að víkja sér undan byssukúlum) hér á landi. Ekki vegna tíðra skotárarása heldur frekar sökum rysjótts veðurfars.
Bíllausi dagurinn hvað
Bloggandi er þeirrar trúar að netlausi dagurinn í dag fari létt með að slá bíllausa deginum við í áhrifum á samfélagið enda er Ísland landið þar sem maður og bíll verða eitt.
Gatnamót í iðrum jarðar
Bræðurnir á Lynghaga hafa lengi velt fyrir sér útfærslunni á gatnamótunum í Vestfjarðargöngunum, þar sem tvíbreiði leggurinn frá Ísafirði tengist leggjunum til Flateyrar og Suðureyrar. Ætli gatnamótin séu ljósastýrð? Eða er e.t.v. stórt holrúm inni í miðju fjallinu? Spyr sá sem ekki veit. Ormurinn vonar bara að stemmningin sé ekki áþekk því sem var í kvikmyndinni júgóslavnesku.
Baggalúturinn
Dulítið fyrir þá sem sækja Baggalútinn ekki nógu oft heim. en ek heiti Sverrir 19:57
Hér var ekki látið við sitja. Íslenskunemar bloggara í Rimaskóla voru látnir skrifa ritgerð með heitinu „Skemmtileg kvikmynd“ í stað morkinnar uppástungu reynds kennara, „Það sem ég gerði í sumarfríinu“. Í líkindafræðinni voru svo kúlurnar sem dregnar voru úr pokanum ekki rauðar, hvítar og bláar eins og vaninn er, heldur innihélt nammipokinn tyggjókúlur, Bingókúlur og lakkrískúlur.
Sem mótvægi (og til að halda andlitinu) fjallar heimadæmið fyrir morgundaginn um líkurnar á því að vera tekinn upp í 13 manna hópi (hmm...sama og fjöldi nemenda).
En kannski er þetta orðið fullmikið popp. en ek heiti Sverrir 19:21
Gaman að sjá að Gísli er vaknaður til lífsins á ný (eftir ítrekaðar ávirðingar Kattarins). Ekki er nóg með að hann uppfræði undirritaðan um frammistöðu hins nafnprúða Tríós Briggs, heldur boðar hann einnig hinn sanna rétttrúnað í enska boltanum. en ek heiti Sverrir 19:04
Gísla saga er ýmsum hugleikin þessa dagana. Á morgun hefur Ormurinn kennslu í henni í bókmenntatíma fyrir 10. bekk. Jafnframt skilst honum að ekki sé lengur nein sérstök Íslendingasaga lesin til samræmds prófs heldur sé prófað almennt úr þeim (birtur textabútur og spurt út í hugtök og umgjörð).
„Höfum við gengið til góðs...?“ en ek heiti Sverrir 16:57
Þetta er fyrsta blogg Ormsins úr Rimaskóla en þeim á nú eftir að fjölga. Jafnframt vill Ormurinn bljúgur biðjast afsökunar á frammistöðunni síðustu dagana. Á föstudaginn hlóðust tvö ný störf á hann en í dag heltist annað sumarstarfanna úr lestinni. Staðgengill yfirmanns kannaðist reyndar ekki við að bloggari starfaði á stöðinni (tók samt niður nafnið) og notaði tækifærið til að kveina yfir skömmum fyrirvara uppsagnar (um var að ræða fjögurra tíma vakt á laugardag og fimm tíma á sunnudag). en ek heiti Sverrir 16:40
Bloggandi setti upp núna áðan athugasemdakerfi frá HaloScan.com, sem (NB!) virðist virka. Það hefur alla kosti sem slíkt kerfi má prýða, bæði tekur við ábendingunum og er ekki tvær mínútur að birtast. Orminum sýnist það samt vera erfitt að snara kerfinu yfir á portúgölskuna.
Einnig er gestabókin komin í lag, undirrituðum að óvörum. en ek heiti Sverrir 16:38
Bræðurnir á Lynghaga fengu Alexöndru Kjeld og Snorra Beck í heimsókn um kveldið. Horfðu þau saman á norsku myndina Elling. Stórfín mynd. en ek heiti Sverrir 12:04
Ormurinn var hjá Önnu í Stórholtinu í gær. Hún er sannkallaður höfðingi og skenkti honum Rauða kverið eftir Kínareisu sína. Bloggandi las það eitt sinn á íslensku og rámar í setningu sem hljómaði eitthvað á þessa leið: „Ef fólkið á ekki sinn alþýðuher, þá á það ekki neitt.“ Þetta eru gömul sannindi og ný. Undirrituðum var bent á strikamerkið á bakhliðinni en ætli það sé ekki bara táknrænt fyrir kommúnismann þarna austur frá. en ek heiti Sverrir 21:52
Kötturinn hefur frá mörgu að segja í nýjasta bloggi sínu. Þar segir m.a. af upphafi skóla hans í Berkeley. Víkur síðan blogginu að ótilteknumfrændum sem kenna við útitaflið í vetur og má sjá hvernig Kötturinn malar af ánægju yfir Málsögunni góðu og ekki síður Gallehushornunum.
Gallehushornin hafa reyndar áður dúkkað upp í bralli blogganda og catusins. Þeir sáu saman um spurningakeppnina Ratatosk í MR þar sem Kötturinn samdi og flutti þriggja liða og þriggja stiga vísbendingaspurningu um hornin. Var hann hneykslaður þegar hvorugt liðið reyndi við 2. og 3. vísbendingu. Undirritaður missti út úr sér að hann kannaðist við mynd af þessum hornum úr Málsögunni en heiti þeirra væri honum runnið úr minni. Þetta fannst ketti ótækt en síðar hefur komið á daginn hvílíkan áhuga Kisi hefur á miðöldunum. en ek heiti Sverrir 17:33
Undirritaður er staddur á Borgarbókasafninu, Grófarhúsinu, og nota lausa stund til bloggs (hér er fyrirmyndin). Var bloggari að koma af kennarafundi í MR og fær ekki betur séð en að bloggarar séu að taka yfir Ísland. A.m.k. var þessi íslenskubloggari þar staddur, ásamt bekkjarsystur blogganda, Ragnhildi Jónsdóttur. Þau eru þó ekki yngstu kennararnir heldur er Baldvin (´81) að kenna 3. bekk stærðfræði. Þar kemur Burkni Helgason reyndar einnig við sögu. Fer eftir hálftíma á kóræfingu MR kórsins en hann syngur við skólasetningu klukkan tvö. Marteinn gjörði heyrinkunnug þau gleðilegu tíðindi í gær að stefnt væri að utanlandsferð kórsins í vor. Ekki er nóg með að það sé gaman heldur mun það hjálpa til við að halda „gamla fólkinu“ í kórnum (en bloggari er um 110 ára á kórmælikvarða). en ek heiti Sverrir 12:36
Í vor kenndi undirritaður kærustu hins bróðursins frá Lynghaga stjörnufræði, ásamt því að vera með skötuhjúunum í kór og mæta skrautlegur á Árshátíð Framtíðarinnar og uppstrílaður á Fiðluball 6. bekkjar. Ekki lítur út fyrir að bloggari vaxi upp úr þessu. Hann mun syngja eins og engill í hetjurödd MR kórsins, vera áfram aðstandi Gettu betur liðsins ásamt því að kenna vini sínum stjörnufræði. Sá hefur reyndar í sínum hópi lagt út af stjörnufræðikennsluhugtakinu á nokkuð sérstakan hátt. Það er einlæg von bloggara að hann láti slíkt vera í skólanum í vetur.
Glæpaormurinn
Er það ekki flott að geta upplýst um glæp áður en hann er framinn? Ormurinn er í slíkri aðstöðu og leysir gátuna hér á blogginu. Svo er mál með vexti að á föstudögum lýkur kennslu í Rimaskóla 11:05 og hefst 11:35 í MR. Bloggari nýtir sér þjónustu byggðasamlags um almenningssamgöngur en vagn fer frá Orminum ráðgjafa kl. 11:08 og endar ferð sína á Lækjartorgi 11:33 (skv. leiðabók). Því eru stórfelld vinnusvik í uppsiglingu: Ef samþykki þeirra fæst, þá verður lærisveinunum í Rimaskóla hleypt út á slaginu 11 (sem gerir um 3 klst. samanlagt í vetur). Einnig hefur sérlegt leyti fengist hjá rektor skólans við Útitaflið til þess að mæta örlítið of seint gegn því að nemendum verði bætt það upp í tvöföldum tíma á fimmtudögum. Ólíklegt verður að teljast að nemendur sætti sig við 5 mínútna lengingu fimmtudagstímans frá 15:35 til 15:40 (já, kennslustundunum í MR lýkur 2x í viku á óguðlegum tíma). Því er nokkuð víst að þar verði sá atvinnurekandi einnig svikinn um 5 mínútur til. Svikin virðast ekki stórvægileg en jafngilda ríflega heilum kennsludegi (6 klst.) ef þau verða samviskulega rækt í vetur. en ek heiti Sverrir 00:59
Bloggari mætti til nýrrar vinnu í fyrsta sinn í morgun í Rimaskóla. Mun hann starfa þar við kennslu hægferðarhópa í 9. og 10. bekk í vetur og kenna þeim íslensku og stærðfræði. Staðan er 75% staða sem drýgð verður með 6 kennslustundum á viku í stjörnufræði við Menntaskólann við útitaflið (25% staða). Einnig verður gripið í verkefni við Minjasafnið eftir því sem kostur er á. Er trúlegt að starfið á stöðinni verði látið róa eftir eina til tvær helgar (4 störf í augnablikinu) og eru því síðustu forvöð að heimsækja mig þangað á sunnudögum (vei!).
Strákurinn í Hverfinu
Dygga lesendur hefur trúlega ekki rennt í grun að götuheitabloggið væri fyrirboði svo stórra tíðinda sem kennarastarfið í Rimaskóla vissulega er. Fríðindin með starfinu komu þó í ljós strax í dag í strætóferð með vagni 14 alla leið upp í Staðahverfið. Ekið var m.a. um Völundarhús og framhjá Hamravík, auk þess sem Ormurinn ráðgjafi dvelur við biðstöðina.
Út að éta með Íslendingum
Fjölskyldan fór út að borða í kvöld. Héldum fyrst á Pizzahúsið sem virtist vart fokhelt. Virðist sögu næstelsta pitsustaðar landsins þar með lokið, en staðurinn var grunnlagður 1981. Aðeins Hornið er eldra, stofnað 1978. Fullt var út úr dyrum á Ítalíu en borð fékkst á Eldsmiðjunni. Þar fékk bloggari sér pitsuna „El Pollo Loco“ með kjúklingi, hnetum, sólþurrkuðum tómötum, sveppum og jalapeneos. Var þetta í fyrsta sinn sem hann stelur senunni af föður sínum í pitsapöntunum. Pitsan bragðaðist vel og fær staðurinn meðmæli lyngfisksins. en ek heiti Sverrir 20:32
Seinni parti kvölds var varið með Maríu Ásmundsdóttur, Brasilíufara. Hún er á leið til Bologna á Ítalíu eftir u.þ.b. 12 daga og verður sárt saknað af blogganda. Sat hún að tafli með honum á Vín fram á nótt en af úrslitum fara engar sögur. en ek heiti Sverrir 18:11
Bloggari er í augnablikinu útvarpsstjóri hjá Múzik.is ásamt einhverjum sex öðrum. Nú eru til útvarps Afkvæmi guðanna (sem einhver annar valdi) en þau kveða Upp með hendur og er þar lag við:
Hórumangarar,
upp með fokking hendurnar.
Núna allar konurnar,
sýni brjóstaskorurnar.
Núna allar kerlingar,
upp með fokking krumlurnar.
Við viljum vera höstlaðar
af Afkvæmum guðanna.
Þetta er í hrópandi mótsögn við feministabloggið. en ek heiti Sverrir 16:14
Söguhetjan ætlar í kvöld ásamt bróður sínum á menningarnótt til að horfa á íslenska hipphoppmenningararfinn. Munu þeir fyrst rífa í sig Nonnabita en síðan verður litið við í Gallerí Rifi í Landsmiðjuhúsinu og Listasafni Íslands. Ýmsir koma fram í Galleríinu, m.a. Erpur og Steindór Andersen, og má gera ráð fyrir að þar verði stappað. En um náttmál stígur á stokk í Listasafni Íslands maðurinn sem slær jafnvel Kóngnum við í nafngift, sjálfur Caesarinn. Þar má ekki láta sig vanta. Reyndar leitt að missa af öðrum meisturum í nafngjöfum, Trio Briggs, sem verða í Eymundssyni á sama tíma. Tónleikarnir með Keisaranum verða fyrstu dægurtónlistartónleikar undirritaðs (fyrir utan Eldborgarhátíðina og 17. júní) og því tímamót í sjálfum sér. Útlit er fyrir að þeir næstu verði bráðlega þegar Pitsamaðurinn heiðrar Frónbúa með nærveru sinni. en ek heiti Sverrir 15:43
Kveikjan að þessari umfjöllun bloggara er frétt um stuld á kópnum Lúlla úr dýragarðinum í Laugarási í Biskupstungum (Bláskógabyggð). Undirritaður varð miður sín yfir þessari frétt enda er ljótt að hrekkja dýrin. Hins vegar bætti það ekki málstað dýragarðsins í Laugarási þegar mynd birtist af „stíu“ Lúlla í grein á fréttavef Morgunblaðsins. Þarna er greinilega rekinn dýragarður af gamla skólanum í ætt við dýragarðinn í Barcelona og Sædýrasafnið sáluga.
Bloggari las áðan stórmerkilega grein um það hvernig vísindamenn reyna að hagnýta alfalfaplöntur til þess að safna saman gulli í afarsmáa kekki (á nanókvarða). Plönturnar eru látnar vaxa á „gullauðguðum“ jarðvegi í rannsóknastofu (sem þ.a.l. inniheldur gull í óvenjumiklum mæli) og líkt og plöntum er lagið safna alfalfaplönturnar í sig steinefnum, þar á meðal gulli. Búið er að finna greiningartækni til þess að greina agnirnar en enn á eftir að finna hagkvæma leið til þess að sækja gullið í greipar alfalfa.
Hvers vegna eru menn að standa í þessu? Jú, ástæðan er eftirspurn hálfleiðaraiðnaðarins eftir gulli í agnarsmáar(!) rásir. Raftæki fara minnkandi með tímanum, sem og smárásir, og gullið er afarhentugur málmur í smárásir sökum leiðni og þess að það tærist ekki. Þær aðferðir sem beitt hefur verið byggjast hins vegar á efnafræði og fela iðulega í sér notkun eða myndun efna sem eru óæskileg heilsunni. en ek heiti Sverrir 16:05
Undirritaður lenti í sígildu samtali í gær þegar hann þurfti að taka leigubíl. Bifreiðin var ekki af verra taginu, nýlegur Bens með leðursætum o.fl. Bloggandi hóf samtal sitt við bílstjórann með því að hrósa bílnum hans. Mæltist það vel fyrir enda liggur stysta leiðin að hjarta Íslendings ekki um magann heldur felst hún í hrósi um bílakost viðkomandi. Tveimur mínútum síðar brýtur bílstjórinn aftur ísinn með því að spyrja hvort söguhetjan hafi ekki verið í spurningakeppni framhaldsskólanna (og hvort það hafi ekki verið mikil vinna o.s.frv.). Það stemmir og eftir nokkra umhugsun bílstjóra kemur sígilda atriðið:
Bílstjóri: „Ég er samt með spurningu sem ég er viss um að þú getir ekki svarað.“
Bloggari: „Kannski best að þú komir með hana.“
Bílstjóri: „Veist þú hver er hæsti punktur Danmerkur?“
Bloggari: „Er það ekki Ejer Baunehøj?“
Bílstjóri: „Hvernig vissirðu þetta?“
Bloggari: „Við flettum þessu upp á æfingu spurningaliðsins.“
Síðan fylgdu vangaveltur um hve hátt hlutfall keppenda í Gettu betur gætu þessa spurningu (og einnig um hve hallað hefur verið á Dani í keppninni því undirritaðan rámar í að spurt hafi verið bæði um Kebnekaise (2.117 m ha, ha!) í Svíþjóð og Galdhøpiggen í Noregi en að Danmörk hafi verið sniðgengin). Kom þá ástæðan fyrir spurningunni í ljós en bílstjórinn var danskur að uppruna.
Það sem gerir þetta hins vegar enn kómískara er að á heimasíðu Vina Ejers Baunehøjs (170,95 m) er því líst hvernig hann tók við titlinum af Himmelbjerget (147 m) 1847 (eftir yfirlýsingu frá danska herforingjaráðinu) en missti hann yfir til Yding Skovhøj (172,66 m) 1939 þegar nýjar mælingar voru kynntar til sögunnar. Þetta minnir menn á að staðfræði er ekki óumdeilanleg (sbr. íslenska fossa) og jafnframt eru hugrenningatengsl við færslu hæsta punkts Evrópu frá Mont Blanc til Elbrus þegar víðsýnir menn fóru að telja Kákasusríki Sovétríkjanna með öðrum svæðum heimsálfunnar.
Vinafélag Ejers Baunehøjs, sem sér um síðu fjallsins, var stofnað 1999 til að stuðla að eflingu umhverfis umhverfis fjallið. Andinn sem svífur yfir vötnum á vefsíðunni er samt frekar þannig: „Má vera að Yding Skovhøj sé hæsta fjallið en Ejer Baunehøj er samt flottari.“ Helsti lærdómur bloggara af þessum vefsíðum er þó sá að auðveldara er að gera hæstu fjöll Danmerkur að merkum ferðamannastöðum en hæstu fjöllin á Fróni. en ek heiti Sverrir 14:46
Bloggari, í slagtogi við Köttinn og Jarlaskáldið, rakst sjálfur eitthvað í dyrasíma húss við Thjarnargötu í vor og fór um suma sæluvíma vel heppnaðs strákapars. Meginprakkarastrikið það kvöldið fólst þó trúlega í fullsnemmbærum útburði Dagblaðsins en bíleigendur við Dunhaga og Ægissíðu hafa vafalaust unað glaðir við sitt. Er þó réttast að undirritaður taki fram að þeir félagar, Jarlaskáldið og Kötturinn, eru álitnir menn dagfarsprúðir. Er það helst þegar tiltekinn fugl húkir yfir mannfögnuðum að þeir færast í ham.
Forseti Ísalands hefur hvatt blogganda við annan mann til að gefa sérstakan gaum að þessum hlekk (sem er þrusumerkilegur, a.m.k. Löduhlutinn). Bróðir undirritaðs, Snæbjörn, benti hins vegar á þennan bíl um daginn sem mundi hæfa manni af sauðahúsi Ísleifs.
Í ljósi þessarar umræðu var tækifærið notað og vefur Löduverksmiðjanna kannaður. Forsíðan er ný og flott en áfram er lítið að græða á vefsetrinu, sérstaklega ef menn eru ekki þeim mun kattliðugri í enskri tungu. en ek heiti Sverrir 00:00
Ásamt því að hlusta á útvarpið átti bloggari leið í Grafarvoginn í dag ásamt Jónatani. Lausleg athugun gefur til kynna að gæðum götunafna í því hverfi sé æði misskipt. (Vonandi fyrirgefa íbúar mér það að ég set alla byggð norðan Grafarvogs undir sama hatt.) Undirrituðum þætti til dæmis ekki ónýtt að búa í Völundarhúsum, á Fróðengi, í Hamravík, í Svarthömrum eða við Gylfaflöt (reyndar í atvinnuhverfi). Öllu síðra væri þó að búa við Dvergaborgir eða í Geithömrum. Rimahverfið sker sig þó úr varðandi slæm nöfn. Nefni ég götuheitin Berjarimi, Mosarimi og Mururimi því til stuðnings og virðist sem að nafngjafar hafi þar aðeins gleymt Horriminni. Hefur bloggara þó borist til eyrna að í nafngjafanefnd sé einn bloggenda . Vonandi slær hann á þá tilgerð sem fylgir allnokkrum nöfnum í nýja Grafarholtshverfinu en það er þó ljóst að menn geta ekki staðið sig mikið verr en í Rimahverfinu. en ek heiti Sverrir 18:49
Bloggari hefur ákveðið að feta í fótspor bloggara nokkurs og játa á sig áskrift að Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Það var fyrst fyrir mörgum árum að Vegagerðin tilkynnti að hún myndi draga úr auglýsingum um útboð í dagblöðum en gefa þess í stað út sérstakt blað handa verktökum. Þá fýsti undirritaðan að gerast áskrifandi, og oft síðar, en lét ekki verða að því fyrr en Einkamálabloggarinn reið á vaðið. Þvílíkar fréttir í framkvæmdafréttunum: Hönnun nýs kafla á vegi 49, Nesbraut (a.k.a. Hringbraut), í Vatnsmýrinni á leið í útboð í haust, sem og útboð á nýrri brú yfir Þjórsá. Lagning nýja vegspottans við Þjórsá er hins vegar komin á samningaborðið.
Áhuginn á vegagerðinni og lagningu slitlags vaknaði snemma, enda þreytist fjölskyldufaðirinn á Lynghaga seint á að rifja upp sögu frá ferðalögum fjölskyldunnar á Mýrunum. Um þær fór fjölskyldan oft á leið í Hnappadalinn og lenti m.a. í því að nýlagt slitlag í veginum frá Snæfellsnesinu (54) hafði hreinlega bráðnað í sumarhitunum en á öðrum stað var nýhækkaður vegurinn klæddur stórgrýti. Var bílstjórinn bölvandi og ragnandi yfir nýframkvæmdunum og lyftist brá hans lítt þegar elsti strákurinn í aftursætinu sagði í aðdáunartón: „Hér verður kominn nýr og góður vegur þegar við verðum hér á ferðinni næst!“ Hlaut hann þá útnefningu sem „sérlegur blaðurfulltrúi Vegagerðarinnar“ (sbr. blaðafulltrúa) og hefur haldið þeim titli síðan. en ek heiti Sverrir 12:25
Það er bloggara fagnaðarefni að núsnæðismál Kattarins séu komin á hreint vestur í San Fransisco. Gaf hann upp heimilisfang í bloggi sínu og er því ekki hægt að skorast undan því að senda honum svo sem eitt sendibréf upp á gamla móðinn. Jafnframt lét söngfuglinn Harpa í sér heyra frá Írlandi, en hún er á lestarferðalagi um Bretlandseyjar. Sagðist hún hafa mætt á þriggja daga geitahátíð í Killorglinhéraði. Kannski að þarna sé ónumið land í markaðsmálum ferðaþjónustunnar og að „Hátíð sauðkindarinnar“ verði haldin hér árlega eftir nokkur ár.
Nógu hallærisleg speki til þess að það hverfi ekki strax úr huga manns. Hvað ætli slagorðasmiðurinn hafi fengið fyrir sinn snúð? en ek heiti Sverrir 00:52
Sunnudagsblað Moggans var óvenjuáhugavert í dag. Birt er viðtal við Róbert Douglas um nýjustu kvikmynd hans, Mann eins og ég. Er bloggara ljóst, bæði af viðtalinu og auglýsingum í kvikmyndahúsum, að þessa mynd verður hann að sjá, en fyrri mynd Róberts í fullri lengd, Íslenski draumurinn, vakti mikla lukku hjá honum og bróður hans. Í sérblaði Morgunblaðsins var svo umfjöllun um Megas, plöturnar og tunguna. Var þar vitnað til bókarinnar Megas eftir Magnús Jónsson: „Út í Noregi kvartaði Magnús mikið undan því hvað íslenskan væri fátæk af slangri. Hann sagðist beinlínis ætla að standa skipulega að því að auka slangur og líkur á því að það festist; væru það orð sem féllu að beygingarkerfinu.“ Seinna átti hann þátt í því að taka saman Orðabók um slangur (frá slangri til slangurs) ásamt Merðinum. Mörðurinn hafði áður sagt Megas „fegurstu rósina á íslenska poppakrinum“ [þarna kom bloggari upp um sig; innsk. ritstj.]. Nú þyrftu góðir menn að taka sama nýja orðabók um slangur í íslensku enda margt sem heyrir til slangurflokksins. en ek heiti Sverrir 16:03
Eftir vinnu skutlaði Ísleifur mér heim með viðkomu í Mjólkurbúðinni. Svo var sund á dagskránni með Snorra Beck í Vesturbæjarlauginni. Um kvöldið var svo haldið í gleðskap hjá Kjartani og Sylvíu. Þar var margt góðra gesta, hverja fæsta ég þekkti. Ólafur Jóhannes var þar glaðbeittur, sem og Stefán frændi minn Jónsson. Óli predikaði gæði viskísins umfram aðra görótta drykki á milli þess sem hann átti í hrókasamræðum við Árna Sveinsson, kvikmyndagerðarmann, um málaferlin vegna heimildamyndarinnar Í skóm drekans.
Næsti kapítuli
Haldið var niður í bæ á Næsta bar. Það er margt um manninn á svona stað þegar líða tekur á aðfaranótt laugardags. Við gerðum okkar til þess að lækka meðalaldurinn en fyrsta manneskjan sem ég þekkti var Þóra vinkona pabba og mömmu (sem eiga 2-3 ár í fimmtugt). Einnig hitti ég fyrir Ólaf Guðmundsson sem vinnur með okkur Stefáni á Minjasafninu. Það var aðeins fyrir örfáum vikum að Stefán rakst á hann niðri í bæ á Næsta bar. Mætti álykta út frá þessu að ef fólk vill hitta fyrir starfsmenn Safnsins á síðkveldum þá sé Næsti bar ekki svo óskynsamlegur áfangastaður.
Af óspektum
Á næsta bar rakst ég á stelpu sem ég hitti fyrir ca. 10 mánuðum síðan niðri í bæ, gamall MK-ingur sem er að hefja nám á 2. ári í lögfræði. Þegar við hittumst síðast í Bankastrætinu ákvað hún að við skyldum berja að dyrum í Stjórnarráðinu við dræmar undirtektir næturvarðarins. Múrinn tengist reyndar fleiri skammarstrikum því að kvöldi 15. febrúar, eftir afmæli Kattarins, gerðu tveir gamlir spurningaliðsmenn orrahríð að stjórnarráðinu. Voru þeir búnir vopnum frá ónefndum matvælaframleiðanda. Jarlaskáldið hafði þá nýlega yfirgefið okkur en hann hefur einkum beint borgaralegri óhlýðni sinni að Landnámsmanninum okkar.
Brullaup
Söguhetjan vaknaði á laugardagsmorgun og leit í ljúgfróða blaðið. Þar sá hún sér til mikillar skemmtunar að vitnað var til pistils hennar og yfirmannsins af Múrnum í Lesbókinni. Það skyldi þó aldrei fara svo að örnefnið „Staurinn eini“ festi sig í sessi? Eftir hádegi var haldið í brúðkaup Theódórs Friðrikssonar, móðurbróður söguhetjunnar, og Berglindar Haðardóttur í Bústaðakirkju. Séra Pálmi stóð sig bara vel og ekki skemmdi að Ólafur Kjartan Sigurðsson söng þar nokkrar aríur. Yngsti meðlimur stórfjölskyldunnar, Kristján Páll Theódórsson, var skírður og verður að segjast að sögumaður er all-sáttur við nafngiftina. Var að þessu öllu mikill sómi fyrir fjölskylduna í Engjaselinu og er henni hér með óskað hjartanlega til hamingju. en ek heiti Sverrir 13:29
Merkilegt með þessa titla. Um leið og æðstipresturinn safnsins lokaði á eftir sér dyrunum hér áðan breyttist starfsheiti mitt úr sérlegum skósveini safnvarðar í starfandi safnvörð. Þannig að þegar fjölmiðlar ætla að hafa samband við safnvörð í dag verða þeir að tala við starfandi safnvörð „því ekki náðist í náðist í safnvörðinn en hann er á ferðalagi“.´
Orkublogg vikunnar
Kynni til sögunnar nýjan dálk á blogginu, orkublogg vikunnar. Kveikjan að þessu bloggi er umfjöllun um Grímsnesveitu á heimasíðu vinnuveitanda míns, Orkuveitu Reykjavíkur. Í samvinnu við Hitaveitu Þorlákshafnar (sem Orkuveitan hefur keypt) ætlar OR að leggja hitaveitu í sumarbústaði og á sveitarbæi í Grímsnesi. Til þess að vatn frjósi ekki á veturna og sprengi leiðslurnar þarf að halda uppi stöðugri hringrás vatns með sérstakri hringrásardælu. Hér kemur snilldin: Þar sem ekki er komið rafmagn í bústaðina er hægt að nota svonefndan varmarafal til að framleiða rafmagn inn á geymi. Rafallinn nýtir sér hitastigsmuninn á milli heita og kalda vatnsins og ef hann er nægur og kerfið virkar vel er jafnvel eitthvað aflögu til almennrar notkunar í bústaðnum. Sniðugt! en ek heiti Sverrir 12:59
„Omic“ yfirskriftin var ákveðinn gæðastimpill á skrifstofuvélum á seinni hluta aldarinnar. Við Stefán safnvörður fengum að skoða stórmerkilegar skrifstofuvélar sem eru í eigu dánarbús Ottó A. Michelsen, m.a. gamla diktafóna með segulkefli, eina elstu gataspjaldavél á Íslandi ásamt ritvél frá 19. öld. Allt stórmerkilegt og geymt í gamla húsinu þar sem Skrifstofuvélar voru til húsa á Klapparstíg 19. Utan á húsinu, sem er friðað steinhús, er einmitt klukka frá Ottó sem á stendur „Omic“. Undirritaður hafði lengi velt því fyrir mér hvers vegna þarna væri klukka, enda opinbera tímamæla helst að sjá við Hlemmtorg og á Lækjartorgi. en ek heiti Sverrir 15:22
Svo gæti lýsingin á nýja örnefninufélaga Pálssonar hljóðað í skrá yfir örnefni í Þórsmörk frá árinu 2120. Ég hef oft velt vöngum yfir því hverjir þessir gárungar væru síðan ég hóf að leika ´95 árgerðina af Trivial Pursuit (og reyndar einnig ´88 módelið) . Nú hef ég svarið.
Ach so!
Sagði þessa setningu á tveggja mínútna fresti þegar ég lóðsaði ferðamenn um safnið í dag. Þangað vatt sér franskur jarðfræðikennari frá Strasbourg sem sagðist vera slöpp í ensku en hafa lært þýsku í barnaskóla. Því var ekki um annað að ræða en leiðsegja henni, stamandi, á menntaskólaþýsku. Heimsóknin veitti mér hins vegar færi á því að segja „Ach so!“ á tveggja mínútna fresti þegar hún sagði mér frá því hvernig orkumálum væri háttað heima hjá sér. Einnig komu 2 þýskir ferðamenn til viðbótar þegar við vorum að loka og varð ég þá orðinn mun liprari í þýskunni. Þau voru hins vegar kattliðug í ensku þannig að hægt var að grípa til hennar þegar okkur var orða vant. Þau renndu í hlað á risastórum Unimog og þegar ég spurði þau hve lengi þau ætluðu að dvelja hér á landi svöruðu þau til að þetta væri þriggja mánaða ferðalag. Frá því í byrjun júní höfðu þau ekið um allt land og lagt að baki 6 þúsund km, þ.e. rúmlega fjórfalda vegalengd hringvegarins. Dágóður spotti það!
Fugl dagsins
Var viðstaddur í útsendingu þáttarins Sumarstefja á Rás 1 í dag. Hann var sendur út frá Elliðaárhólma og ræddi Leifur Hauksson við veiðimann frá Stangveiðifélagi Reykjavíkur og safnstjóra Minjasafns Orkuveitunnar. Mætti ég sem sérlegur aðstoðarmaður þess síðarnefnda. en ek heiti Sverrir 19:00
þriðjudagur, ágúst 06, 2002
Nú er komin á Múrinn grein eftir mig og félaga Pálsson en við höfum séð aumur á kjaftastéttum og besserwisserum þessa lands. Þar með hef ég að nokkur leyti bundið trúss mitt við þá Múrverja, þótt ég hafi ákveðin tengsl við aðstandendur annarra vefrita. en ek heiti Sverrir 16:06
This is my blogchalk: Iceland, Reykjavík, Vesturbær, Icelandic, Sverrir, Male, 21-25, Music.