Ormurinn hefur ákveðið að slá litla bróður og Óla Gneista við og bjóða atkvæði sitt til sölu á litlar 8.500 krónur með þjónustu í Heimdallarkosningunum. Þjónustan yrði þá veitt af hálfu kaupanda, sem myndi skrá bloggara úr Flokknum eftir kosningarnar, en undirritaður kæmi sér sjálfur á staðinn.
Án þjónustu færi atkvæðið á eitthvað hærra verði, en annars er bloggari opinn fyrir öllum tilboðum.
Tiltekt
Bloggari hefur setið með sveittan skallann í kvöld við að taka til í gömlu dóti.
Meðal þess sem fór í blaðagám áðan var 2000-árgangurinn af Economist, gamla frjálshyggjublaðið „Efst á baugi“, nokkrir árgangar af Vélabrögðum frá hinum og þessum kynningum og sýningum (gömlum Verplum var samt haldið eftir), ásamt fyrsta tölublaði „Hamhleypunnar“ með viðtali við Júlíus Kemp um kvikmyndina Blossa 810551. Ormurinn mat það samt svo að gaman væri að eiga áfram tölublað X-tra blaðsins um tónlistarhátíðina Uxa ´95. Ekki merkilegt, en sómir sér samt vel í sama tímaritavasa og Miklagarðstíðindin.
Bloggari hikaði við að taka til hendinni í safni ljótustu sólgleraugna norðan Alpafjalla (m.a. tvenn rauð X-Men sólgleraugu) en það er greinilega grisjunar þörf. en ek heiti Sverrir 23:32
Allt stefnir þó í að þá verði þetta meira spennandi. Húsmóðirin ætlar að elda mexíkanskan mat (ekki mexíkóskan) og eftir hann fer parið á Nesveginn og hefur lakkvinnu fyrir alvöru. en ek heiti Sverrir 15:03
Sá sem stendur fyrir þessu gríni (egg standa jú ekkert frekar upp á endann á þessum degi frekar en öðrum) er „slæmi stjörnufræðingurinn“, sem heldur úti þeirri stórkostlegu síðu Bad astronomy.com.
Á þessari síðu ræðst hann á ýmsan útbreiddan misskilninginn, s.s. af hverju himinninn er blár, af hverju það eru árstíðir o.fl. Það er alveg drepfyndið hvernig sumir skýra (ranglega) bláan lit himinsins.
Víst Ormurinn er byrjaður á þessu linkabloggi, þá er hér fróðleg síða sem nemandi benti bloggara á um „þotuna“ sem flaug á Pentagon. en ek heiti Sverrir 14:19
Í nýjasta tölublaði Framkvæmdafrétta eru sýndar tölvuteiknaðar myndir af fyrirhuguðum göngubrúm á Njarðargötu og Hringbraut (eftir flutning suður fyrir Læknagarð og BSÍ). Ef það er eitthvað í samgöngumálum sem höfðar mest til bloggara, þá er það væntanlega brúarsmíði. Þessar göngubrýr líta vel út (a.m.k. á myndinni) og er öllu léttara yfir þeim en brúnum á Miklubraut og Hafnafjarðarveginum. Það var reyndar ljóst að ekki væri sama pláss fyrir jarðvegsfyllingar í Vatnsmýrinni og á hinum stöðunum. Menn aka grjótinu þá bara á tipp í staðinn.
Það sem er þó (bráðum) í hendi í brúargerð er Þjórsárbrúinnýja, stórglæsilegt mannvirki, ásamt tveimur göngubrúm við Stekkjarbakka og Goðatorg í Hafnarfirði.
Á þeirri fyrrnefndu eru álíka mörg höf og á gömlu brúnni yfir Jökulsá á Sólheimasandi. Þar verður gaman að plampa yfir.
Síhringjandi síminn
Nú er gaman að geta svarað „hjá Eyjólfi Guðmundssyni“ í símann, svipað og heimilisfaðirinn tók upp á þegar undirritaður var í 10. bekk (og þótti fyndið). Næsta skref er að unglingurinn fái headsett undir derhúfuna (eitthvað hefur reyndar dregið úr derhúfunotkun eftir að ungmennið fluttist til kaldari landa.) en ek heiti Sverrir 15:35
Óvíst er þó um hvenær Ormurinn kemst yfir þetta fjall blogga, enda er hann kominn með í hendurnar lykla að risíbúð á Nesvegi 66, en þangað stendur til að flytja saman með Ósk eftir tvær til fjórar vikur.
Bloggari fór með Forsetanum og Svanssyni á myndina Bloody Sunday um samnefndan atburð. Myndin var góð og varpaði ljósi á tímabil sem Ormurinn er of ungur til að hafa upplifað.
Leiðin heim lá um Suðurlandsbrautina. Þar stendur enn gamla, ljóta Teppabúðarhúsið. Eitt er Orminum ráðgáta: Af hverju er ekki rekinn Paintballsalur, Laser-tag eða Go Kart-braut í húsinu? Það myndi alveg fullkomna svona óhrjálegt „bíður niðurrifs“-hús. en ek heiti Sverrir 14:05